Forsíða
Uppfærsla á þýðingu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Magnús Guðlaugsson   
Miðvikudagur, 07. janúar 2009 13:12

Þýðing á uppsetningu Joomla er nú tilbúin.

Fyrsta þýðingin á installer Joomla er núna loksins kláruð og búið að skila henni inn til Joomla.org og mun hún fylgja næstu útgáfu af Joomla! 1.5.9. Ef þú villt nálgast þýðinguna strax þá er hún komin í niðurhalskerfið okkar bæði á þessari síðu og á JoomlaCode.

 

Uppfærsla á síðu þýðingunni í 1.5.8.v4

Þó nokkrar breytingar eru á þessari útgáfu miðað við 1.5.8.v1

1.5.8v4

Bætti við ISO kóðum

1.5.8v3

Nú er hægt að installa beint yfir gömlu þýðinguna, nokkurskonar uppfærsla þótt þetta sé en full þýðing. Áður fyrr þurfti maður að uninstalla gömlu þýðingunni til að það væri hægt að installa nýju sem gerði það að verkun að viðbætur sem notuðu sömu möppu fyrir þýðingar hurfu.

1.5.8v2

Nýjar línur og nokkrar lagfæringar eins og að sum skjöl voru ekki utf-8, löguð stafsetning og breyting á þýðingu orða. Einnig var þessi útgáfa breitt í samræmi við breytingu á nafni samfélagsins.

Eins og áður þá er þessi þýðing aðeins fyrir útgáfur Joomla! 1.5+ en ekki eldri gerðina.

 

Joomla! ætlar að hætta alveg stuðningi við Joomla! 1.0.x á þessu ári og eyða út öllu sem tengist henni á extensions síðunni og annarstaðar. Ef þú ert enn að nota gömlu gerðina þá er kominn tími á að uppfæra í nýju Joomla! 1.5.x. Ég geri mér grein fyrir því að sú uppfærsla er ekkert svo auðveld en þú getur lesið þig til hérna http://docs.joomla.org/Migrating_from_1.0.x_to_1.5_Stable

 

 
Joomlís! © 2008 Allur réttur áskilinn - joomlis@joomlis.net - Keyrt á Joomla! 1.5.14