Forsíða
Fréttir 31/12/08 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Magnús Guðlaugsson   
Miðvikudagur, 31. desember 2008 11:47

Á meðan við þökkum fyrir árið sem er núna að líða þá höfum við smá fréttir að færa...

Við erum núna að fara í breytingar á samfélaginu, eins og glöggir menn sjá þá erum við komin með nýtt nafn (Joomlís!) og nýtt logo. Í framhaldi af því þá breytum við slóðinni á síðuna í http://joomlis.net og síðan verður flutt á server á Íslandi. Þetta er allt gert (nema flutningur á servernum) til að samræmast reglur og skilyrði Joomla! um notkun á logoi og nafninu. Nýja nafnið Joomlís! og logoið vísa bæði til Joomla og Ísland en það var mikill hugleikur að finna logo sem vísaði bæði til Joomla og Íslands án þess að brjóta logo höfundarrétt Joomla! og fánalög íslenska fánans en ég er nokkuð sáttur við útkomuna. Joomlis! er grípandi og stutt nafn og mun slóðin á síðuna joomlis.net vera nokkuð styttri og auðveldari að muna en joomla-island.com.

Við erum að laga allt sem við þurfum að laga til að standast Translation and Localization Policy Joomla! til að samfélagið Joomlís! verði í sátt og samlyndi við Joomla! hópinn. Það á eftir að taka smá tíma fyrir mig að breita öllu sem þarf að breyta fyrir það en einnig ætla ég að laga síðuna betur svo hún verði skilmerkilegri.

Ég vill taka það fram að öllum er frjálst að taka þátt í þessu samfélagi og leggja Joomla lið í að hafa Joomla kerfið á íslensku, það er eins og flestir ættu að vita mjög erfitt að þýða svona kerfi yfir á íslensku og til eru margar skoðanir hvernig ætti að þýða ákveðin orð og setningar en ég vill heyra frá ykkur öllum og fá ábendingar um betrumbætur.

 

Ég óska ykkur öllum velfarnaðar á komandi ári og þakka fyrir það liðna.

Magnús Guðlaugsson

 

 
Joomlís! © 2008 Allur réttur áskilinn - joomlis@joomlis.net - Keyrt á Joomla! 1.5.14